



Reisn Verk hefur skapað sér traust orðspor á sviði smíða og byggingaframkvæmda. Við sameinum hefðbundin handverk og nútímaleg vinnubrögð til að skila vönduðum þakverkum, endurbótum, innréttingum, sérsmíði og öðrum framkvæmdum sem standast tímans tönn.
Ferlið hjá okkur
1
Ráðgjöf - Skoðun
Við hefjum ferlið á ítarlegu mati á þörfum verkefnisins og aðstæðum á verkstað til að skilgreina umfang verksins og tryggja skýra áætlun frá upphafi.
2
Skipulagning
Við setjum upp ítarlega framkvæmdar og verðáætlun þar sem farið er yfir alla þætti verksins. Þannig tryggjum við að bæði uppbygging, útlit og frágangur falli saman og allt verkefnið gangi samkvæmt áætlun.
3
Framkvæmd
Fagleg og nákvæm smíðavinna er unnin af alúð og fagmennsku, með áherslu á vönduð vinnubrögð, gæði og traustan frágang.
4
Verklok
Við ljúkum verkinu með faglegri yfirferð og afhendingu, tryggjum að allt sé frágengið, öruggt og tilbúið til notkunar.










